Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 86. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók þessa mynd. Húsið er merkt Gistihúsið Lindabrekka. Veistu hvar þetta er? Þekkirðu jafnvel sögu gistihússins?

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR