Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 316. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvaða hús er í byggingu á myndinni hér að ofan? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudaginn var. Ekki hafa borist ábendingar um hana. Hins vegar barst staðfesting á því að myndin sem birtist fyrir hálfum mánuði er húsið Norðurgata 34 á Akureyri – sjá hér

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR