Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
20.11.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 315. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudaginn var. Kona sendi akureyri.net erindi þess efnis að hún teldi þetta vera Norðurgötu 34 á Akureyri. Hvað segja lesendur um það?

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR