Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 313. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudaginn var. Nokkrir lesendur létu vita að þetta er í Ólafsfirði – í fjarska er Arnfinnsfjall, gjarnan kallað Finnurinn. Ekki hefur borist ábending um hver drengurinn er.

     

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR