Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 311. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin á Ólafsfirði. Húsið næst strákunum mun vera læknisbústaðurinn. Annar frá hægri er líklega Björn Þór Ólafsson, margfaldur Íslandsmeistari í skíðastökki og skíðagöngu. Einn lesandi spyr hvort lengst til vinstri sé „Maggi Stefáns“ og lengst til hægri „Mummi Villa“. Hvað segir fólk um það?

     

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR