Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
16.10.2026 kl. 16:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 310. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi stórskemmtilega mynd er tekin og jafnvel hverjir þetta eru? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Þetta er gamla Reykjahlíðarkirkja í Mývatnssveit; reist 1876 og var sóknarkirkja til 1962 þegar ný kirkja var vígð. Sú stendur um það bil þar sem ljósmyndarinn var þegar hann tók þessa mynd.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR