Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
09.10.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 309. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að vita það, og búa jafnvel yfir frekari upplýsingum um myndina eða staðinn, eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Lesandi sem hafði samband velti því fyrir sér hvort myndin gæti verið tekin á Sauðárkróki; húsið í fjarska gæti verið hluti þess sem núna er Víðimýri 1. „Myndin væri tekin til norðvesturs. Hækkunin í baksýn væru Nafirnar, þar fyrir ofan Gönguskörð og þá Tindastóllinn til hægri,“ skrifaði hann. Taka aðrir undir það eða er fólk e.t.v. á öndverðum meiði?

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR