Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 307. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir frekari upplýsingum um myndina eða sögum henni tengdar eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Sigríður M. Sigurðardóttir sendi upplýsingar um myndina og hafi hún kæra þökk fyrir. Sigríður skrifar: Þetta er Búland í Arnarneshreppi og fólkið er Halldór Ólafsson bóndi, Sigríður Margrét Ólafsdóttir, Hákon norskur strákur sem var þar hjá þeim og Kristín Halldórsdóttir. Agnes Egilsdóttir bætti við upplýsingarnar og telur að myndin sé tekin sumarið 1947.
  • Arnarneshreppur var norðan Akureyrar. Árið 2010 sameinaðist hann Hörgárbyggð undir nafninu Hörgársveit – (Hörgárbyggð varð til 1. janúar 2001 þegar Glæsibæjarhreppur, Öxnadalshreppur og Skriðuhreppur sameinuðust).

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR