Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 306. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi frábæra mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir frekari upplýsingum um myndina eða sögum henni tengdar eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Mynd dagsins má líka sjá hér

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Þetta er á Akranesi; á skiltinu stendur AXEL SVEINBJÖRNSSON SKIPAVERSLUN. Hún var stofnuð þann 18. desember 1942 af Axel Sveinbjörnssyni (1904–1995), fyrrum skipstjóra og stýrimanni. Skiltið er í dag geymt á Byggðasafninu á  Akranesi ásamt mörgu fleiru úr búðinni. „Níu mánuðum eftir að Axel byrjaði að versla kom Guðjón Finnbogason í vinnu til hans og vann í Axelsbúð í 56 ár. Traustur og góður starfsskraftur, eins og margir af eldri kynslóðinni vita sem kynntumst honum,“ segir á Facebook síðu Axelsbúðar. Hún er í dag rekin af Axel Gústafssyni sem er barnabarn stofnandans. „Axel hóf ungur störf hjá afa sínum og tók við rekstri Axelsbúðar fyrir aldamót og rekur verslunina enn í dag við heimili sitt að Merkigerði 2,“ segir á heimasíðu verslunarinnar.

Hér er mjög fróðleg og skemmtileg heimasíða verslunarinnar: Axelsbúð

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR