Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 305. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin? Á húsinu stendur AXEL SVEINBJÖRNSSON SKIPAVERSLUN og við einfalda leit var fljótlegt að komast að því hvar þetta er. Þeir sem kunna að búa yfir frekari upplýsingum um myndina eða sögum henni tengdar eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Mynd dagsins má líka sjá hér

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Þetta er síldarplan á Siglufirði en nákvæmari upplýsingar hafa ekki borist.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR