Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 299. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Mynd dagsins má líka sjá hér

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Þetta er Vallarkirkja í Svarfaðardal. Ekki hafa borist upplýsingar um mennina á myndinni; lesendur eru hvattir til að skoða myndina betur og athuga hvort þeir kannast við einhvern fjórmenninganna eða jafnvel alla.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR