Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
24.07.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 298. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin og jafnvel hvaða menn eru á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
Mynd dagsins má líka sjá hér
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Þetta er Norðurgata 16 á Akureyri, einnig nefnt Svarfdælingahús, að sögn Arnórs Blika Hallmundssonar, höfundar pistlanna frábæru, Hús dagsins. Norðurgata 16 er byggt 1926 og verður að sögn Arnórs Blika Hús dagsins, „eins og meiningin er með öll hús bæjarins sem eiga aldarafmæli í ár, líklega síðsumars eða með haustinu.“
- Soffía Jakobsdóttir leikkona skrifaði um húsið á Facebook síðu akureyri.net eftir að myndin var birti þar: „Þarna átti ég heima fyrstu árin mín á Akureyri eftir að pabbi minn lauk námi í Reykjavík. Í Norðurgötu 16 var gott að vera. Fullt af krökkum. Jóhanna mín Guðmunds hinumegin. Gamla prentsmiðjan og hann Rósi sem elti okkur með dauða rottu sem hann hélt í skottið á. Svo var loftvarnarbyrgi í kjallaranum sem allir forðuðu sér í ef flauturnar fóru í gang. Gott hús .“

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR