Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 294. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin er tekin og hvaða framkvæmdir eru í gangi? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Þetta er gamli prestsbústaðurinn á Grenivík.
  • Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík, sendi fróðlegar og skemmtilegar upplýsingar, einu sinni sem oftar. Björn skrifar:

    Húsið var byggt 1903 fyrir sóknarprestinn í Grenivík, séra Árna Jóhannesson. Hann bjó þar með stórri fjölskyldu til dauðadags 1927. Þá flutti í húsið Jóhann J. Kristjánsson læknir sem líka átti stóra fjölskyldu. Þau bjuggu þar til 1937 er þau fluttu til Ólafsfjarðar. Þá var húsið rifið og byggt nýtt læknishús. Símstöð var í húsinu frá 1919 til 1933.

    Myndin er tekin eftir 1931 því að í kirkjugarðinum má sjá minnismerkið sem er á leiði sonar lækinshjónanna Hannesar Jóhannssonar (1926-1931). Líklega er þetta frú Inga Guðmundsdóttir sem stendur á pallinum

     

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR