Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 293. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin og hvaða fólk stendur við húsið? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku og um hana bárust skemmtilegar upplýsingar.
  • Myndin er tekin á hesthúsavellinum á Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði. Í baksýn eru fjárhúsin á Ytri-Á og Múlinn. Fjárhúsin hafa breyst töluvert, helmingurinn af þeim hefur verið rifinn og hlutinn þar sem lægra þakið á myndinni er var hækkaður og settur hærri stafn og brattara þak.
    Konurnar tvær eru sagðar dætur Finns Björnssonar og Mundínu Freydísar Þorláksdóttur sem eignuðust 20 börn saman og bjuggu á neðri hæðinni á Ytri-Á. Lesandi taldi að konurnar gætu verið Stefanía Gunnlaug og Birna en Laufey systir þeirra var einnig nefnd. Ekki er enn vitað hvaða barn er á milli þeirra. Gaman væri ef ættingjar þeirra skoðuðu myndina gaumgæfilega og sendu nánari upplýsingar.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR