Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
05.06.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 291. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin og hvenær, og jafnvel hvaða menn eru þarna? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin fallega hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Margir áttuðu sig á því að myndin er tekin á Grenivík og Björn Ingólfsson fv. skólastjóri skrifaði mjög skemmtileg skilaboð þegar myndinni var deilt á Facebook síðu akureyri.net. Björn segir:
„Þetta hús smíðaði Jóhann Jeremías Kristjánsson læknir í Grenivík handa sonum sínum. Það stóð á túninu rétt neðan við bæinn og var tekið niður á veturna. Strákarnir heita Guðmundur Kristján, Haraldur Kristófer og Heimir Brynjúlfur. Móðir þeirra Inga Guðmundsdóttir er lengst til vinstri, ég veit ekki hver hin konan er.“

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR