Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
29.05.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 290. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hafa lesendur hugmynd um hvar þessi dásamlega mynd er tekin og hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Margir hafa bent á að þetta sé Höfn í Hornafirði en nánari upplýsingar hafa ekki borist.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR