Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
15.05.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 288. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvaða kirkja þetta er. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Hún er tekin í Ólafsfirði; sumir lesendar telja að þetta sé sumarbústaður hjónanna Jóhanns Jeremíasar Kristjánssonar, sem var héraðslæknir í Ólafsfirði frá 1937 til 1961, og Ingu Guðmundsdóttur eiginkonu hans. Aðrir hafa sent upplýsingar um að þetta sé „læknisbústaðurinn“. Veit einhver með vissu hvort húsið var heimili læknishjónanna eða sumarhús?

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR