Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
08.05.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 287. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk er við húsið? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Ekki hafa borist upplýsingar og lesendur eru því hvattir til að skoða hana gaumgæfilega og athuga hvort þeir átti sig á því hvar myndin er tekin og þekki jafnvel mennina.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR