Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 285. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú hugmynd um, lesandi góður, hvaða hús er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Margir vissu að hún er tekin á Húsavík og nefna því til staðfestingar húsin sem sjást í fjarska; Húsavíkurkirkju, Bjarnahús og Bjarnabúð. Fáeinar ábendingar bárust um nöfn mannanna; fullyrt er að sá í miðjunni sé Jón Guðjónsson sem hafi starfað sem bakarameistari í Kristjánsbakaríi á Akureyri þegar það var til húsa við Strandgötu, og þeirra hugmynd var varpað fram að maðurinn lengst til hægri gæti verið Þorkell Eggertsson sem lengi var í Slökkviliði Akureyrar. Hvað segja lesendur um það?

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR