Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 284. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú hugmynd um, lesandi góður, hvaða menn eru á myndinni, hvar hún er tekin og jafnvel hvenær? Sá sem þetta skrifar þykist vita í hvaða bæjarfélagi þetta er, en gefur ekkert upp að sinni! Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Möðruvallastræti 5 á Akureyri. Skv. upplýsingum frá lesanda var húsið byggt árið 1946 og hannað af Jónasi Snæbjörnssyni.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR