Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
03.04.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 282. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú hugmynd um, lesandi góður, hvaða hús þetta er eða hvaða maður er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er bærinn Syðra-Dalsgerði í Eyjafjarðarsveit – áður Saurbæjarhreppi – sem stendur undir Hvassafellsfjall. Fremsti hnjúkur fjallsins kallast Hestur og er með hærri toppum í Eyjafjarðarsveit. Hestur sést reyndar ekki á þessari mynd.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR