Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 281. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú hugmynd um, lesandi góður, hvar þessi frábæra mynd er tekin? Þekkirðu jafnvel nöfn fólksins, allra eða einhvers? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin frábæra hér að neðan birtist fyrir viku og lesendur komu með skemmtilegar upplýsingar og tilgátur.
  • „Brúarflokkur Þorvaldar Guðjónssonar?“ spurði Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir eftir að myndinni var deilt á Facebook síðu akureyri.net og sagði það tilgátu bónda síns, Rögnvaldar Ólafssonar.
  • „Mér sýnist Heimir Ingimarsson bróðir minn vera þarna þriðji til vinstri aftast,“ skrifaði Halla Ingimarsdóttir.
  • Steinunn Björg Gunnarsdóttir kom með magnaðar upplýsingar. Hún skrifar: „Pabbi og mamma telja að myndin sé tekin í Vatnsfirði í Vestur-Barðastrandarsýslu. Konurnar eru Laufey Böðvarsdóttir móðursystir mín frá Tungumúla (lengst til vinstri) og Björg Bjarnadóttir frá Rauðsdal, fyrir aftan hana stendur Hafliði Árnason frá Flatey. Annar frá [hægri] í fremstu röð (með hendur í vösum) er Samúel Bjarnason frá Rauðsdal. Fyrir aftan Samúel er Sigurjón Árnason frá Flatey (dökk peysa og hvít skyrta). Maðurinn í röndóttu peysunni er Einar Sigurbrandsson frá Grænhól. Væri gaman að sjá ef það eru til fleiri myndir frá þessum vinnuflokki.“ 

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR