Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
06.03.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 278. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Veist þú, lesandi góður, hvar þessi mynd er tekin? Þekkirðu bílnúmerin og veist jafnvel hverjir áttu þessa bíla? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er gamli skíðaskálinn í Hveradölum, á Hellisheiði milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Skálinn brann til kaldra kola í janúar árið 1991 en árið eftir reis nýr skáli á staðnum

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR