Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
27.02.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 277. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Kannast þú, lesandi góður, við staðinn? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Bjarnaneskirkja í Nesjum við Hornafjörð. Hún var teiknuð af Einari I. Erlendssyni árið 1911, eftir hugmynd Rögnvaldar Ólafssonar eftir því sem næst verður komist. Kirkjan var dæmd ónýt vegna gallaðrar steypu, brennd og brotin niður 1973.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR