Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 273. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi dásamlega mynd er tekin? Gaman væri að vita hvaða bær þetta er og helst hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Margir hafa velt vöngum yfir henni en enn er beðið eftir skemmtilegum tilgátum um hvar myndin er tekin og jafnvel hvert fólkið er.



  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR