Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 272. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi fallega mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk þetta er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Margir lesendur áttuðu sig strax á því að þetta er í Hornafirði. „Gamla innsiglingin á Höfn í Hornafirði,“ skrifaði einn. Annar sagði: „Þetta er frá Höfn í Hornafirði. Garðurinn liggur út í Standey og var að mig minnir hugsaður til að minnka sandburð í höfnina. Þessi eyja er löngu orðin landföst í dag.“



  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR