Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
12.12.2025 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 266. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvaða hús þetta er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Lesendur eru sammála þetta sé Húsavík og að myndin sé tekin fyrir 1907 því ekki sé búið að byggja kirkjuna. Í pósti frá einum segir:
-
Húsaþyrpingin í forgrunni eru KÞ húsin og stóru húsin hægra megin eru sennilega Guðjonhsen húsin, verslun-vöruhús-heimili.Gilið rétt sunnan við þau hús er Búðarárgilið, þar sem Búðaráin rennur til sjávar, en hún á upptök í Botnsvatni sem er skammt fyrir ofan Húsavík, uppundir Reykjaheiði.
Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR
