Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
05.12.2025 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 265. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina og staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Myndina má finna á vefnum vefnum ferlir.is - https://ferlir.is/thorlakshofn-sagan-i/ þar sem segir að þetta sé Þorlákshöfn og að myndin sé tekin árið 1913.
Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR
