Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
21.11.2025 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 263. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar og við hvaða tilefni þessi dásamlega mynd er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Borist hafa upplýsingar um að hún sé tekin á Húsavík í afmælisveislu Stefáns Guðjohnsen, kaupmanns þar í bæ, sem situr fyrir miðri mynd ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Jakobsdóttur. Stefán var fæddur 3. mars 1868 í Reykjavík en Kristín 26. mars 1868 á Sveinsstöðum í Húnavatnssýslu. Luma lesendur á meiri upplýsingum um myndina?
Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR
