Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 234. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Lesendur telja að þetta sé í miðbæ Reykjavíkur og að byggingin í bakgrunni sé Siemsenhús, Hafnarstræti 23. Ekki er vitað hvaða fólk er á myndinni og lesendur því hvattir til að skoða hana betur.