Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 178. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hér er mynd dagsins óskorin, eins og hún er varðveitt á Minjasafninu.

Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin og jafnvel hvaða menn þetta eru? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net Athugið að myndin er skorin en neðst í fréttinni sést hún öll.

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er bærinn Stórólfshvoll í Hvolhreppi. Staðfest er að maðurinn vinstra megin er Sigtryggur Eiríksson, öðru nafni Tryggvi Kaldan, sem bjó og starfaði sem læknir í Helsingjaeyri í Danmörku. Hugsanlegt er að maðurinn til hægri sé ljósmyndarinn Willem van de Poll sem ferðaðist um landið árið 1934. Einn lesandi sagði mögulegt að bíllinn á myndinni sé sá sem notaður var í því ferðalagi, R-765.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR