Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 175. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin, jafnvel hvenær og hvaða fólk gæti verið á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Margir bentu fljótlega á að þetta er bærinn Hof á Höfðaströnd í Skagafirði. Lilja Pálmadóttir, eigandi jarðarinnar, bætti um betur og telur að myndin sé tekin árið 1938, þegar haldið var upp á gullbrúðkaupsafmæli langömmu hennar og langafa, Jóns Péturssonar og Sólveigar Eggertsdóttur.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR