Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 173. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Svona er myndin óskorin:

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Akureyri.net fékk þessar upplýsingar sendar: Þetta eru Æsustaðir í Eyjafjarðarsveit (Gamli Saurbæjarhreppur). Myndin tekin fyrir 1940 því samkvæmt Byggðir Eyjafjarðar II (1973) er húsið sem stendur þar nú, byggt á árunum 1940-1942 og miða við þetta sjónarhorn þá væri það líka á þessari mynd ef það væri komið.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR