Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 169. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin? Jafnvel hver litli drengurinn er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Langamýri í Vallhólmi, í gamla Seyluhreppi í Skagafirði. Ingibjörg Jóhannsdóttir, sem fædd var á bænum, stofnaði þar kvennaskóla, Húsmæðraskólann á Löngumýri, árið 1944 og stýrði skólanum sjálf til 1967 er hún gaf þjóðkirkjunni jörðina. Til gamans má geta þess að Konráð Gíslason málfræðingur, einn Fjölnismanna, var fæddur á Löngumýri. Hann leit fyrst dagsins ljós 3. júlí árið 1808.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR