Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 164. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar myndin dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þarna er Þingvallakirkja og Þingvallabærinn gamli. Kirkjan sjálf er reist 1859 en turninum er bætt við 1907 svo myndin er tekin eftir það en áður en gamli Þingvallbærinn var rifinn 1928 og húsin sem við þekkjum svo vel í dag voru reist 1930. Kirkjugarðshliðið hefur verið fært og er ögn lengra til norðurs í dag. Það sést móta fyrir Ármannsfelli til norðurs lengst til vinstri á myndinni.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR