Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 160. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvaða konur eru á mynd dagsins eða hvar hún er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Gunnar Kristjánsson bóndi á Dagverðareyri. Myndin er tekin þar, líklega um 1950; Gunnar var fæddur 1912 og Þórgunnur Oddsdóttir, afabarn hans, segir fjölskylduna telja Gunnar um fertugt á myndinni. 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR