Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 159. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar þessi stórskemmtilega mynd dagsins er tekin og jafnvel hvaða maður situr hestinn? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ekki fer á milli mála að þetta er bærinn Syðra-Laugaland í Öngulsstaðahreppi, nú Eyjafjarðarsveit.  Myndin er tekin 1947 eða 1948. Bragginn norðan við húsið var reistur 1947 og byggt var við húsið sjálft, til norðurs, árið eftir. Myndin er því tekin á milli þeirra framkvæmda.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR