Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 153. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar þessi mynd tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er stíflu- og loku mannvirki Laxárvirkjunar 2 í Aðaldal.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR

Upplýsingar hafa borist um langflestar myndanna frá Minjasafninu sem birst hafa hér síðustu missseri en óvenju lítið upp á síðkastið. Fólk er eindregið hvatt til þess að skoða gömlu myndirnar betur í því skyni að aðstoða safnið við að afla sem mestra upplýsinga.