Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: þekkirðu staðinn eða fólkið?

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Mynd dagsins, eins og sú fyrir viku, er úr albúmi sem var í eigu Jóns Norðfjörð. Ekki er ósennilegt að hann hafi tekið myndina sjálfur. Ferðamenn veiða þarna á stöng, líklega við Mývatn eða Laxá.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hvar myndin er tekin og hvaða fólk er þarna á ferðinni eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR