Mannlíf
Gamla myndin: Þekkirðu fólkið eða staðinn?
16.04.2021 kl. 09:55

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ekkert er vitað um mynd dagsins að þessu sinni; ekki nafn ljósmyndarans, hvaða fólk þetta er eða hvar myndin er tekin.
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR