Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: þekkirðu fólkið eða staðinn?

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ekki er vitað hver tók mynd dagsins, ekkert er vitað um mennina á myndinni eða hvar á landinu verbúðin var.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hvar myndin er tekin og hvaða menn þetta eru, eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR