Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: Hvar gæti þetta verið?

Vikulega birtist gömul ljósmynd hér á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa í gegnum tíðina borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Ekkert er vitað um mynd dagsins að þessu sinni; ekki nafn ljósmyndarans eða hvaða bær þetta er, hvað þá nöfn hesta og hunds! En hugsanlega lumar einhver meira að segja á þeirri vitneskju...

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR