Fyrir hverja er þessi svokallaða netverslun?
Enn rabba þeir saman, Stefán Þór Sæmundsson og Aðalsteinn Öfgar, í pistli þess fyrrnefnda sem akureyri.net birtir í dag. Þetta er sá fjórði í pistlaröð sem Stefán kallar einfaldlega Á spjalli með Aðalsteini Öfgar og í dag er áfengi á dagskrá en þó einkum vangaveltur um nýtilkomna viðskiptahætti með þá vöru hérlendis.
„Stefán minn?“ Aðalsteinn Öfgar var óvenju niðurlútur. Við sátum í eldhúsinu hjá honum niðri á Eyri og hann hafði verið svo vinsamlegur að hella upp á annað kaffi fyrir mig en gulan Braga. Þessi gamli félagi minn var oft ansi næmur og nú virtist hann lesa hugsanir mínar. „Ætlarðu nokkuð að fara að gagnrýna frjálsu áfengisverslanirnar? Þú veist að Guðaveig hérna í hverfinu hefur haldið mér gangandi þegar allt annað hefur brugðist og þótt ég sé gamall allaballi styð ég heilshugar frelsi í áfengissölu.“
Stefán skrifar:
Guðaveig var bara ein af fjölmörgum svokölluðu netverslunum með áfengi sem sprottið höfðu upp í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld voru tvístígandi og svifasein þegar framtakssamir einstaklingar ákváðu að spila aðeins á lög og reglur. Raunar hið ótrúlegasta mál. Það er víst hægt að þykjast vera erlend vefverslun til að smjúga fram hjá regluverkinu en samt getur fólk bara mætt á staðinn, tekið upp símann og pantað og svo fara starfsmenn í kælinn eða lagerinn og reiða fram það sem pantað er. Mjög svipað því að versla í Vínbúðinni.
Pistill Stefáns Þórs: Við elskum þessar mellur