Fara í efni
Mannlíf

Fulltrúar VMA fengu gull og silfur á Íslandsmóti

Irena Fönn Clemmensen, Íslandsmeistari í einstaklingskeppni í hársnyrtiiðn í flokki sveina og meistara, og Hafþór Karl Barkarson, Íslandsmeistari í málmsuðu. Myndir af vef VMA.

Fulltrúar Verkmenntaskólans á Akureyri hlutu tvenn gull- og ein silfurverðlaun á Íslandsmóti iðn- og verkgreina um helgina. Keppt var í Laugardalshöllinni í Reykjavík þar sem einnig fór fram framhaldsskólakynning – Mín framtíð 2023.

  • Irena Fönn Clemmensen varð Íslandsmeistari í einstaklingskeppni í hársnyrtiiðn í flokki sveina og meistara. Hún brautskráðist frá VMA árið 2020 og starfar nú á hársnyrstistofunni Adell á Akureyri.
  • Hafþór Karl Barkarson varð Íslandsmeistari í málmsuðu.
  • Þá vann Kormákur Rögnvaldsson til silfurverðlauna í fantasíugreiðslu. Þar var þemað hörmungar og Kormákur túlkaði húsbruna í sinni greiðslu. 

VMA átti fulltrúa á Íslandsmótinu í rafvirkjun, rafeindavirkjun, hársnyrtiiðn og málmsuðu. „Í málmsuðu voru tíu þátttakendur, þar af tveir frá VMA, Hafþór Karl og Anton Karl Kristjánsson sem varð í fjórða sæti. Verkefnið fólst í því að keppendur suðu saman ýmsa málmhluti eftir kúnstarinnar reglum og þurfti að beita flestum suðuaðferðum. Stykkin voru síðan metin af dómnefnd og hún mat það svo að Hafþór Karl Barkarson hefði í heildina skilað bestu verki - og því vann hann til Íslandsmeistaratitils,“ segir á vef VMA.

Smellið hér til að sjá myndir sem VMA hópurinn tók í Laugardalshöllinni

VMA á „Mín framtíð 2023“ í Laugardalshöllinni

Irena Fönn Clemmensen og módelið sem hún greiddi.

Hafþór Karl Barkarson Íslandsmeistari í málmsuðu.

Kormákur Rögnvaldsson vann til silfurverðlauna í fantasíugreiðslu með greiðslunni hægra megin.

Gull-suða Hafþórs Karls Barkarsonar.

Kormákur Rögnvaldsson túlkaði húsbruna í keppni í fantasíugreiðslu.