Fróðleikur um hlyntré úr fjársjóði Björgvins
Í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar ber Sigurður Arnarson saman algengustu hlyntré landsins (runnar eru ekki meðtaldir). Annað er miklu algengara en hitt, segir hann, en eigi fólk í vandræðum með að greina á milli garðahlyns og broddhlyns sé lausnin komin.

Björgvin Steindórsson
„Björgvin Steindórsson var forstöðumaður Lystigarðs Akureyrar frá 1997 og þar til hann lést eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri árið 2016. Björgvin var alltaf í vinnunni og arfleifð hans lifir í garðinum,“ segir Sigurður í upphafi pistilsins. „Björgvin tók fjölda mynda af trjám og allskonar gróðri á ferðalögum sínum heima og í útlöndum, í Lystigarðinum og í eigin garði. Fyrir andlát sitt merkti hann flestar myndirnar og flokkaði. Ekkja hans, Anna Rebekka Hermannsdóttir, hefur veitt okkur aðgang að þessu stóra myndasafni sem við lítum á sem mikinn fjársjóð. Í safninu er einnig að finna stuttar lýsingar á mörgum ættkvíslum og tegundum sem Björgvin hafði skráð hjá sér.“
Pistill dagsins byggir að mestu á einu skjali Björgvins, segir Sigurður.
Meira hér: Samanburður broddhlyns og garðahlyns