Fara í efni
Mannlíf

Fróðlegt hvað ármenn skógræktar skrifuðu

„Árið 2012 birtu þeir Bjarni E. Guðleifsson og Hallgrímur Indriðason grein í fyrra hefti Skógræktarritsins um Gömlu-Gróðrarstöðina. Þar segja þeir frá úttekt sem framkvæmdarstjóri Ræktunarfélags Norðurlands, Jakob H. Líndal, gerði á árangri trjáræktartilrauna félagsins frá því í byrjun tuttugustu aldar. Niðurstöður sínar birti Jakob í ársriti félagsins árið 1916. Félagarnir Bjarni og Hallgrímur sögðu greinina stórmerka enda væri þetta að öllum líkindum fyrsta uppgjör á trjáræktartilraunum sem gert hafði verið á Íslandi.“

Þannig hefst pistill Sigurðar Arnarson í röðinni Tré vikunnar sem birtist á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga í dag og akureyri.net birtir hlut af að vanda.

Sigurður heldur áfram: „Þetta vakti forvitni okkar og kom í ljós að þeir höfðu rétt fyrir sér. Greinin er allrar athygli verð og lýsir vel hugarfari, áhuga og framtíðarsýn frumkvöðlanna. Umfjöllun um tré vikunnar er byggð á þessari skýrslu frá 1916. Ekki er meiningin að endursegja allt sem þar er að finna enda er greinin nokkuð löng. Þess í stað viljum við vekja athygli á skrifunum og þeirri jákvæðni og bjartsýni sem þar er að finna. Það er mjög fróðlegt að sjá hvað ármenn skógræktar höfðu að segja. Sumt af því er kunnuglegt og stenst tímans tönn býsna vel.“

Pistill Sigurðar í dag: Um trjárækt árið 1916