Fara í efni
Mannlíf

Friðrik Ómar slær jólatónleikana af

Söngvarinn Friðrik Ómar hefur aflýst jólatónleikunum Heima um jólin, sem voru á dagskrá í desember. Þar hugðist hann koma fram ásamt fríðu föruneyti, fimmta árið í röð, en er hættur við vegna Covid faraldursins. Auglýstir voru fernir tónleikar, tvennir 11. desember og tvennir daginn eftir.
 
„Þetta er óhjákvæmilegt í ljósi aðstæðna og ekkert við þessu að gera nema bara að hefja undirbúning fyrir næsta ár. En að því sögðu lofa ég því að ég mun blása í alla lúðra í desember að ári, bæði á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu. Takk allir sem voru búnir að kaupa sér miða og fyrir stuðninginn í gegnum árin. Það verður ærið verkefni að greiða miðana til baka svo ég vona að þið sýnið starfsfólki Hofs skilning og biðlund. Allir kaupendur munu fá netpóst með nánari upplýsingum innan skamms. Ég óska ykkur alls hins besta og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst á tónleikum,“ segir Friðrik á Facebook síðu sinni.