Fara í efni
Mannlíf

Friðjón tekur við veitingasölu á Jaðri

Steindór Kr. Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA og Friðjón F. Helgason.

Golfklúbbur Akureyrar hefur samið við Friðjón F. Helgason um rekstur veitingasölu í golfskálanum á Jaðri. Þetta kemur fram á heimasíðu klúbbsins.

„Friðjón er lærður matreiðslumeistari og hefur víðtæka reynslu og starfað í veitingageiranum til fjölda ára m.a. verið yfirmatreiðslumaður á veitingahúsum í Reykjavík og Kaupmannahöfn, séð um veisluþjónustu og nú síðast yfirmatreiðslumaður á Icelandair hótel Akureyri,“ segir þar.

„Ég sé marga möguleika á að þróa og bæta veitingasöluna hér á Jaðri,“ er haft eftir Friðjóni á vef GA. „Það er virkilega spennandi verkefni framundan að gera veitingaaðstöðuna enn eftirsóknarverðri fyrir kylfinga sem og alla aðra gesti. Hugmyndirnar eru margar og erum við full tilhlökkunar að taka á móti félagsmönnum GA á vormánuðum og fá að kynnast þeim.“

Friðjón tekur við rekstrinum 1. apríl næstkomandi. „Golfklúbbur Akureyrar er mjög spenntur fyrir samstarfinu og hlakkar til að taka á móti okkar fjölmörgu kylfingum hér í Jaðri samstarfi við Friðjón,“ segir Steindór Kr. Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA.