Fara í efni
Mannlíf

Fransmenn fá fiskinn sinn á þriðjudaginn

Unnið af kappi í fiskvinnsluhúsi ÚA í morgun. Mynd af vef Samherja.

Unnið var í fiskvinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa í dag, laugardag, til að fyrirtækið geti staðið við gerða samninga um afhendingu afurða til viðskiptavina í Frakklandi fyrir páska.

„Fiskneysla er mikil víða í Evrópu í aðdraganda páskanna og við vorum búin að skuldbinda okkur til að afhenda viðskiptavinum í Frakklandi töluvert magn af ferskum fiski á þriðjudaginn í næstu viku,“ segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja á vef fyrirtækisins í dag.

Togarinn Harðbakur EA 3 landaði í Þorlákshöfn á fimmtudaginn og stóð til að aka hráefninu norður. Vegurinn um Vatnsskarð lokaðist hins vegar í sólarhring með þ‏eim afleiðingum að fiskurinn komst ekki til Akureyrar til vinnslu í gær og því varð að grípa til þess ráðs að vinna í dag. „Með því að vinna í dag og koma fiskinum í flug frá Keflavík tekst okkur að standa við gerða samninga,“ segir Gestur. 

Upp úr hádegi fór flutningabíll af stað frá Akureyri með um 20 tonn af ferskum þorski til Keflavíkur. Þaðan er fiskinum flogið til Frakklands, þar sem hann verður kominn í verslanir á þriðjudaginn eins og um var samið.

„Þetta er virkilega góður vertíðarþorskur sem veiddur var á Selvogsbanka vestur af Vestmannaeyjum á einum sólarhring,“ segir Gestur.

Hann segir veturinn hafa verið nokkuð góðan en alltaf megi búast við ófærð og þá þurfi að leita allra leiða til að standa við gerða samninga.

„Þetta er alltaf töluvert púsluspil. Sala, veiðar, vinnsla og afhending þarfa að spila saman, þannig að hægt sé að afhenda vöruna á umsömdum tíma. Við erum með frábært starfsfólk sem alltaf er tilbúið til að leggja mikið á sig til að allir þessir þættir gangi upp,“ segir Gestur.

Smellið hér til að sjá meira á vef Samherja