Mannlíf
Franskar kartöflur á íslenskum borðum
14.02.2026 kl. 06:00
Hvað veldur því að maður man suma hluti betur en aðra? Jafnvel smá atvik í æsku - sem fljótt á litið eru svo hversdagsleg - að þau ættu alls ekki að marka spor í lífsleiðina. Ég hef reyndar stundum sagt að það þurfi að vökva minningar svo þær lifi með manni. Ein slík minning, sem ég vökva reglulega, er frá vikunni fyrir níu ára afmælið mitt.
Þannig hefst nýr pistill Þráins Lárussonar í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net birtir í dag. Þetta er sá fimmti í röðinni og hinn fyrri um franskar kartöflur. Eru þær franskar? spyr Þráinn. Í dag skrifar hann reyndar um franskar kartöflur á Íslandi en í næsta pistli, eftir viku, rekur hann sögu þessa vinsæla skyndibita á skemmtilegan hátt.
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Grein Þráins í dag: Eru þær franskar? – 1